|
|
16.03.2009 10:53:16 / fanney
Ætla ekki einhverjar að mæta á þetta á fimmtudaginn 19. mars
|
Hver ræður för? Málþing um félagslega stöðu barna með sérþarfir haldið á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Fimmtudaginn 19. mars 2009, kl. 12.30-17.00. |
Fundarstjóri: Edda Andrésdóttir, fréttamaður 12.30-12.40 Setning Áslaug Jónsdóttir, formaður stjórnar Sjónarhóls 12.40-12.50 ÁvarpLára Björnsdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs í Félagsmálaráðuneyti 12.50-13.10 Blindur+heyrnarlaus = Engir vinir? Bryndís Snæbjörnsdóttir, foreldri 13.10-13.30 Önnur skynjun – ólík veröld. Rannsókn um líf fólks á litrófi einhverfu Jarþrúður Þórhallsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræðum við HÍ og foreldraráðgjafi á Sjónarhóli 13.30-13.45 Félagsleiðbeinandi barna af erlendum uppruna – verkefni hjá Rauða krossinum Ása Kolbrún Hauksdóttir, verkefnisstjóri 13.45-14.00 "Upplifun í nýju landi" Aleksandra Karolina Aniolek, nemandi í 9. bekk í Lækjarskóla. 14.00-14.20 Að lifa lífinu – Tækifæri og möguleikar Hallgrímur Eymundsson, hugbúnaðarsérfræðingur 14.20-14.40 Er skólinn fyrir alla? Þráinn Lárusson, skólastjóri 14.40-15.10 Kaffi og veitingar 15.10-15.30 Lífshlaup og barnæska afbrotamanna með athyglisbrest og ofvirkni Helgi Þór Gunnarsson, meistaranemi við félagsvísindadeild HÍ 15.30-15.50 „Mig langar líka“ Linda Berry, móðir drengs á einhverfurófi og með ADHD 15.50-16.10 „Félagar: Námsefni sem forvörn gegn kvíða og þunglyndi unglinga“ Berglind D. Bragadóttir og Gylfi Jón Gylfason frá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar 16.10-16.30 Ferðin sem aldrei var farin Þórhildur Ída Þórarinsdóttir, foreldri 16.30-16.50 Minning um sérþarfir Þráinn Bertelsson, rithöfundur Veitingar í kaffihléi, á milli kl. 14.40 og 15.10 Verð á málþingið er 2.000 krónur. Greiðsluseðlar verða sendir til greiðenda. Vinsamlegast skráið ykkur á málþingið í síðasta lagi 17. mars n.k. til að auðvelda skipulagningu. |
»
28.11.2008 11:05:08 / fanney
Sælar skvísur En ég ætla nýta mér aðeins þessa síðu til auglýsingar. En þannig er nú mál með vexti að veitngarstaðurinn Rauðará er orðið fjölskyldufyrirtæki. þ.e tengdafjölskyldan mín ásamt mér og mínum manni tókum við þeim stað nú fyrir stuttu  Og ég ætla auglýsa hér  Á fimmtudögum og sunnudögum þá er jólahlaðborð í boði á 2 fyrir einn og kostar 6900kr. Bara svona ef ykkur langar til að lyfta ykkur upp í jólastressinu og skella ykkur á eitt jólahlaðborð. Kv. Fanney jólastelpa
»
04.11.2008 10:29:18 / fanney
Það verður jólapartý heima hjá Írisi 5. desember næstkomandi  Allir koma með eitthvað smá jóló gotterí og allir koma með lítin pakka eins og í denn það er svo rosa gaman.  Vonandi komast sem flestar
»
09.09.2008 15:01:18 / fanney
Sælar dömur Ákveðið hefur verið að hittast á Kaffi París í Kringlunni 25. september næstkomandi um klukkan hálf 9. Það er orðið alltof langt síðan við höfum hisst - deilt reynslu og komið góðum ráðum á milli okkar.  Vonandi komast sem flestar  Kv. Fanney
»
28.08.2008 00:05:18 / andrea
Hæ, hæ og hó, hó. Langt síðan ég hef heyrt í ykkur frökenar mínar og frúr. Ég er orðin þræl spennt að vita hvað er að frétta af ykkur, auðvitað allir byrjaðir að vinna og svona, já eða sinna börnum og búi. Hvað segið þið, einhverjar fréttir af ykkur? Af mér er bara allt þetta besta að frétta, er flutt á Akranes og kann því bara vel. Er komin á fullt í nýju vinnunni og líst bara rosalega vel á þetta allt saman. Strákarnir mínir pluma sig líka fínt í skólanum og leikskólanum þannig að við gætum ekki haft það betra. Hvernig er það, eigum við ekki að hittast yfir kaffibolla eða svo einhvern tíman í september, hvað segið þið um það? Kveðja from Akranes, Andrea.
»
04.05.2008 21:18:04 / íris
jæja girls.. takk kærlega fyrir frábæran hitting seinasta miðvikudag!! afskaplega hressandi svona á vordögum  þó vil ég þakka gestgjafanum mikla sérstaklega fyrir einstaklega skemmtilegar uppákomur og myndarlega bandið sem kom og lék fyrir söng  held ég hafi aldrei séð andreu í eins miklu stuði og þarna hehe.. sveitaballastúlkan svaka hresssssss  Nú er bara að plana hitting í haust skvísur.. hvar og hvenær.. og munum.. what happens in kambsvegur stays in kambsvegur  heyrumst!! skvíris
»
27.04.2008 22:36:35 / fanney
Jæja stúlkur nú eru bara rúmlega tveir dagar í hittinginn hjá Berglindi eru þið ekki örugglega allar búnar að taka miðvikudagskvöldið frá  ... Hlakka til að sjá ykkur vonandi sem flestar. En ætla ekki einhverjar að kíkja á ráðstefnuna hjá útskriftarnemum á morgun og þriðjudag?..Maður sér nú þá kannski einhverjar ykkar þar. Kveðja Fanney
»
08.04.2008 16:47:37 / fanney
Sælar Við hittumst nokkrar úr bekknum á fimmtudagskvöldið síðastliðið og ákváðum að það yrði hittingur heima hjá Berglindi miðvikudagksvöldið 30.apríl næstkomandi  Þetta er ekkert formlegt bara hittast og spjalla og hafa gaman eina kvöldstund saman. Veitingar verða í boði nefndarinnar sem hittist á fimmtudag, fyrir utan drykki við viljum biðja hverja og eina að koma með það sem hún vill drekka fyrir sig  Það verður send út nánari auglýsing með tíma og heimilsfanginu hennar Berglindar síðar. En þið munið bara að taka frá MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 30. APRÍL
adios og við hlökkum rosalega mikið til að sjá ykkur og vonandi geta sem flestar mætt
»
31.03.2008 23:14:57 / fanney
Er einhver sem gæti haldið partý 30. apríl eða spurning hvort við förum út að borða þá.ef enginn treystir sér í að taka á móti okkur hehe  ....annars get ég líka alveg tekið á móti ykkur hérna hjá mér í Garðabænum sko ekki málið bara hvað þið viljið.  Þá er ár og nokkrir dagar síðan við stóðum uppi í Skriðu stolltar að flytja erindin okkar um lokaverkefnin Eigum við kannski að reyna stefna á að halda upp á það þá, það er líka frídagur daginn eftir nema reyndar kannski ekki hjá ykkur sem eruð á vöktum en þið hafið þá allavega smá fyrir vara til að skipta vöktum, eða hvað finnst ykkur? Kv. Fanney
»
13.03.2008 21:45:16 / rakelth
Hún Þórunn okkar fæddi strák þann 5. mars kl: 14:47. Hann vó 4.430 gr. og mældist 53 cm. ;-)
»
10.03.2008 20:51:23 / oddrun
Jámmm, ég er farin að sakna ykkar. Hvað er að frétta? Eigum við að reyna að hittast eitthvað,,, kannski eftir páska?? Hvað segið þið um það  kv. Oddrúnin.
»
24.01.2008 10:23:27 / oddrun

Að þjóna mörgum herrum Málþing Þroskaþjálfafélags Íslands í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp og Kennaraháskóla Íslands haldið föstudaginn 1. febrúar n.k. kl. 9:00 – 16:00 í Skriðu hátíðarsal KHÍ við StakkahlíðDagskránna finnið þið hér Upplýsingar um skráningu er að finna inni á vef ÞroskaþjálfafélagsinsÉg ætla að reyna að komast og vonandi sé ég sem flestar.Kveðja, Oddrún.
»
15.01.2008 12:36:26 / gudrunkr
Hver ræður för? Virðing og samvinna í þjónustu við fjölskyldur barna með sérþarfir. Málþing um systkini barna með sérþarfir Fyrir aðstandendur barna með sérþarfir, alla sem veita þeim þjónustu og aðra sem láta sig velferð þeirra varða. Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð stendur fyrir málþingi um systkini barna með sérþarfir,fimmtudaginn 7. febrúar nk., kl. 8.30 – 12.30 í Gullhömrum, Grafarholti.
»
12.12.2007 21:54:36 / íris
Jólasveinarnir
(Jóhannes úr Kötlum)
Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.
Þeir uppi á fjöllum sáust,
-eins og margur veit,-
í langri halarófu
á leið niður í sveit.
Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
-það var leiðindafólk.
Þeir jólasveinar nefndust,
-um jólin birtust þeir,
og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.
Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn
Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helst þeir leituðu
í eldhús og búr.
Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.
Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk - og trufla
þess heimilisfrið.
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.
Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann skreið ofan úr gili
og skaust í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau rukuupp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Sá sjötti Askasleikir,
var alveg dæmalaus.-
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Sjöundi var Hurðaskellir,
-sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn on af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Ellefti var Gáttaþefur
-aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag.-
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.
Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.
Á sjálfa jólanóttina,
-sagan hermir frá,-
á strák sínum þeir sátu
og störðu ljósin á.
Svo tíndust þeir í burtu,
-það tók þá frost og snjór.
Á Þrettándanum síðasti
sveinstaulinn fór.
Fyrir löngu á fjöllunum
er fennt í þeirra slóð.
-En minningarnar breytast,
í myndir og ljóð.
»
03.12.2007 10:33:39 / evadogg
Takk fyrir síðast þið sem mættuð á "jólahlaðborðið". Spurningamerki við jólahlaðborð þar sem þetta mátti svo sannarlega ekki teljast til slíks. Note to self: ef við ætlum einhvern tímann að fara á jólahlaðborð skulum við sleppa því að fara á Kaffi Reykjavík. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott og þetta var skemmtilegt að hittast svona og rifja upp gamla tíma. Ég frumsýndi m.a. nýtt myndband við góðar undirtektir, fámennur en góðmennur pakkaleikur og svo afhenti ég öllum sérútbúin jóladagatöl sem ég vona að fólk er að njóta og nýtur fram að jólum. Svo er alltaf hægt að nota það aftur og aftur. Já síðast var það myndbandið góða frá Danmörk og jóladiskar handa heimasætum en þetta verður nú engin vani hjá stelpunni hihi. Það má segja að kvöldið hafi verið svona mini útgáfa af lokahófinu okkar góða og kannski nokkurs konar endir á formlegu störfum skemmtinefndar (alla vega hvað mig varðar) Nú veltur það á öllum hvort tíðir verði hittingar hjá þessum hóp eður ei. Spennandi að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. En hvað frumsýnda myndbandið varðar, ætli það verði ekki sýnt á 10 ára reunioninu, annars er vel í boði að kaupa það af mér. Segjum 500 kall fyrir merktan disk með lokahófi uncut og lokamyndbandinu. Hér fylgir svo slóð að gerð myndbandsins Hver er maðurinn? Eitthvað til að stytta okkur stundir í jólaamstrinu. http://youtube.com/watch?v=776yMYY36EQ Annars óska ég ykkur góðra tíma framundan með jólakveðju, Eva Dögg
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|
Heimsóknir
Í dag: 18 Alls: 86133
Jólahlaðborð
Fyrir 1257 dögum
næsti hittingur ?
|